Línudans
með Jóa frá 1995
Komdu á námskeið í línudansi og upplifðu gleðina
Yfir 30 ára reynsla í línudansi!
Engin þörf á dansfélaga • Byrjendur velkomnir sérstaklega velkomnir
Línudans með Jóa hefur verið í boði síðan 1995!
Jóhann Örn Ólafsson hefur kennt dans frá árinu 1993 og línudans frá 1995. Hann er annar tveggja reynslumestu línudanskennara landsins og hefur hjálpað þúsundum að stíga sín fyrstu spor.
Jói lærði samkvæmisdans frá unga aldri og var margfaldur íslandsmeistari. Jói hefur dansað og sett upp óteljandi sýningar á sviði, tekið þátt í söngleikjum í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Hann var fyrstur íslendinga til að kynna línudans hér á landi en einnig var hann einn af þeim fyrstu til að kenna línudans í Kína.
Það voru Jói og kollegi hans, Óli Geir danskennari sem stofnuðu til hátíðarinnar Iceland Line Dance Festival og var hátíðin fyrst haldið haustið 2025 með um 200 þátttakendum frá um 10 löndum. Hátíðin er haldin annað hvert ár og á henni kenna Óli Geir og Jói ásamt heimsþekktum kennurum sem koma erlendis frá.
Smelltu á Youtube myndbandið og lærðu fisléttan línudans sem Jói bjó til og kennir
Línudans er frábær leið til að hreyfa sig, njóta tónlistar og kynnast skemmtilegu fólki. Þú þarft ekki dansfélaga og getur byrjað á þínum hraða. Kennslan hjá Jóa er skemmtileg, skýr og uppbyggileg og hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa meiri reynslu.
Með línudansi bætir þú jafnvægi, samhæfingu og líkamlega vellíðan á meðan þú nýtur þess að læra ný spor og dansa í góðum félagsskap. Fæstir mæta bara fyrir hreyfinguna heldur fyrir gleðina, stemninguna og samfélagið sem myndast í tímunum.
Línudans í Hafnarfirði með Jóa sameinar gleði, hreyfingu og frábæran félagsskap.
Hjá Jóa geta allir fundið tíma við hæfi, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu spor eða hafa dansað lengi.
Byrjendur – þriðjudaga kl. 20:30
Aldrei dansað áður? Hér er farið vandlega yfir sporin alveg frá grunni. Hægri/Vinstri – Fram/Aftur – Tylla/Stíga. Smelltu hér til að sjá dansana
Framhald 1 – þriðjudaga kl. 19:30
Fyrir alla sem hafa tekið byrjendanámskeið eru að koma aftur eftir hlé og þá sem hafa mikla dansareynslu t.d. úr samkvæmisdönsum.
Framhald 2, 3 og 4 – þriðjudaga kl. 17:00–19:30
Fyrir lengra komna. Tíminn er þrískiptur svo allir geta fundið dansa við sitt hæfi
Öll námskeiðin fara fram í sal Karlakórsins Þrasta, Flatahrauni 21, Hafnarfirði.
Jóhann Örn Ólafsson stundaði samkvæmisdans sem barn og unglingur. Sýndi og keppti og varð margfaldur Íslandsmeistari. Hann útskrifaðist úr danskennaranámi á Englandi og á Íslandi vorið 1993 og stofnaði sinn eigin dansskóla um haustið sama ár. Hann lærði sín fyrstu línudansspor hjá bandaríska varnarliðinu í Keflavík árið 1994 og hélt fyrsta línudansnámskeiðið hérlendis sumarið 1995.
Jói hefur því kennt línudans í yfir þrjá áratugi og hjálpað fjölda fólks að stíga sín fyrstu spor. Kennslan einkennist af skýrri uppbyggingu, góðri stemningu og gleðinni sem fylgir því að dansa saman.
Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn finnur þú tíma við hæfi og hlýlegt umhverfi þar sem gaman er að læra og dansa.
Komdu á línudansnámskeið í Hafnarfirði og upplifðu gleði, hreyfingu og frábæran félagsskap.
Veldu námskeið við hæfi og skráðu þig í dag.
Line dancing is a fantastic way to stay active, enjoy great music, and meet friendly people. You don’t need a dance partner, and you can start at your own pace. Jói’s classes are fun, easy to follow, and designed to help you progress, whether you are a complete beginner or have previous dance experience.
Through line dancing, you improve your balance, coordination, and overall well-being while learning new dance steps and enjoying the company of others. Most people don’t come just for the exercise—they come for the fun, the atmosphere, and the sense of community that develops in the classes.
Line dancing in Hafnarfjörður with Jói brings together enjoyment, movement, and great friendships in a welcoming and supportive environment.
With Jói, everyone can find a class that suits their level, whether you’re taking your very first dance steps or have been line dancing for years.
Classes are held at the rehearsal hall of Karlakórinn Þrestir, Flatahraun 21, Hafnarfjörður.
Perfect for those who are new to line dancing and want to learn the basics in a friendly and supportive environment.
For dancers who have mastered the fundamentals and are ready to build confidence and learn more challenging dances.
For experienced dancers looking to develop their skills further, learn more advanced choreography, and enjoy a wider variety of dances.
Jóhann Örn Ólafsson began his dance journey as a child and teenager studying ballroom dancing. He performed, competed, and became a multiple-time Icelandic champion. In 1993, he graduated as a certified dance instructor in both England and Iceland and opened his own dance school later that same year.
Jói learned his first line dance steps at the American military base in Keflavík in 1994 and taught one of Iceland’s first line dance courses in the summer of 1995.
For more than three decades, he has been teaching line dancing and helping countless people take their first steps onto the dance floor. His teaching style is known for its clear structure, welcoming atmosphere, and the joy that comes from dancing together.
Whether you are a complete beginner or an experienced dancer, you will find a class that suits your level and a friendly environment where learning, dancing, and having fun go hand in hand.
Join a line dance class in Hafnarfjörður and experience the joy of dancing, staying active, and becoming part of a wonderful community.
Choose the class that suits your level and register today. Whether you are a complete beginner or an experienced dancer, you’ll find a welcoming atmosphere, great music, and plenty of fun on the dance floor.