Saga línudans á Íslandi

Frá Keflavíkurflugvelli til dagsins í dag

Jóhann Örn Ólafsson skrifar

Línudans er í dag stundaður um allt Ísland, rétt eins og hann er dansaður um allan heim. Vikuleg námskeið eru haldin víða um land og dansleikir og dansæfingar njóta mikilla vinsælda. Fjölmargir Íslendingar ferðast árlega til útlanda til að sækja línudanshátíðir og námskeið og stórir hópar erlendra dansara koma til Íslands til að taka þátt í Iceland Line Dance Festival.

En svona var þetta ekki alltaf.

Fyrir rúmum þremur áratugum höfðu fæstir Íslendingar heyrt um línudans og enn færri höfðu séð hann dansaðan, hvað þá spreytt sig á honum á dansgólfinu.

Saga línudans á Íslandi á rætur sínar að rekja til bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og kántrýtónlistarinnar sem þar var vinsæl í upphafi tíunda áratugarins.

Fyrstu línudanssporin á Íslandi

Línudans barst til Íslands með bandaríska varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli snemma á tíunda áratugnum.

Á Vellinum var vinsæll næturklúbbur þar sem kántrýtónlist var leikin ákveðin kvöld í hverri viku. Hópur Bandaríkjamanna sem bjó og starfaði á Vellinum dansaði þar línudans í bland við „Two Step“.

Í sjónvarpsþætti á RÚV snemma á tíunda áratug síðustu aldar var farið í heimsókn í Kántrýbæ á Skagaströnd. Þar var leikin kántrýtónlist og bandaríski hópurinn frá Vellinum fenginn til að sýna línudans.

Líklegt er að þetta hafi verið í fyrsta sinn sem stór hópur Íslendinga sá línudans, enda voru ekki margir sem höfðu aðgang að dansleikjum innan herstöðvarinnar í Keflavík.

Á þessum tíma var línudans nánast óþekktur hér á landi.

Þegar ég uppgötvaði línudans

Ég hafði sjálfur starfað sem danskennari frá árinu 1989 og lokið danskennaranámi bæði í Englandi og á Íslandi.

Árið 1993 stofnaði ég minn eigin dansskóla og kenndi þar samkvæmisdans.

Um svipað leyti heyrði ég frásagnir fólks sem hafði verið í fríi í Flórída og víðar í Bandaríkjunum og séð skemmtilega hópdansa inni á kántrýstöðum. Fólkið hvatti mig til að kynna mér þetta betur.

Þetta var áður en internetið gat sýnt manni hvað var að gerast hinum megin á hnettinum. Ég gat því ekki einfaldlega farið heim og gúgglað „line dance“.

Ég þekkti hins vegar Friðþór Eydal, sem starfaði sem upplýsingafulltrúi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Ég hafði kennt börnum Friðþórs að dansa og hann var meira en til í að koma mér í samband við fólkið sem hafði meðal annars sýnt línudans í Kántrýbæ.

Sumarið 1994 bauð þetta góða fólk mér í heimsókn. Ég fór á varnarsvæðið í Keflavík, beint á kántrýklúbbinn „Top of the world Two Step club“ þar sem ég sá línudans dansaðan í fyrsta sinn.

Ég varð strax heillaður.

Þetta var allt öðruvísi en samkvæmisdansinn sem ég þekkti. Hér dansaði stór hópur saman við sömu tónlist, enginn þurfti dansfélaga og stemningin var einstök.

Ég lærði fyrstu dansana mína þetta kvöld og fór fljótlega að undirbúa danssýningu og námskeið.

Sigurður Ágúst Hjartarson, vinur minn og dansari, var til í að setja upp með mér kántrýdanssýningu sem við frumsýndum á Ömmu Lú í ársbyrjun 1995.

Fyrstu línudansnámskeiðin

Sumarið 1995 auglýsti ég fyrsta línudansnámskeiðið mitt og Siggi var mér til aðstoðar.

Viðbrögðin komu mér skemmtilega á óvart og greinilegt var að margir höfðu beðið eftir þessu.

Fólk á öllum aldri mætti til að prófa þessa nýju tegund af dansi og fljótlega varð ljóst að áhuginn var miklu meiri en ég hafði þorað að vona. Greinin og myndirnar eru úr Mogganum 1. júlí 1995

Línudans náði fljótt vinsældum og fótfestu á Íslandi og fleiri danskennarar tileinkuðu sér hann og hófu kennslu. Einn þeirra er Óli Geir Jóhannesson sem enn er að kenna eins og ég og saman höfum við haldið fjölmarga viðburði. Við Óli Geir stöndum saman að Iceland Line Dance Festival ásamt góðu fólki.

Óli Geir lengst til vinstri og Jói lengst til hægri ásamt Niels, Dee,
Nikki, Thomas og Amund á Iceland Line dance Festival 2025

Línudans hefur breyst mikið á 30 árum

Línudans hefur breyst töluvert frá fyrstu árunum.

Í upphafi var nær eingöngu dansað við kántrýtónlist og flestir dansarnir voru tiltölulega einfaldir.

Í dag er dansað við nánast allar tegundir tónlistar. Popp, rokk, latíntónlist, írsk lög, diskó, ballöður og auðvitað kántrí eru allt hluti af línudansinum.

Dansarnir sjálfir hafa einnig þróast og orðið fjölbreyttari en grunnurinn er enn sá sami: gleði, tónlist og hreyfing í góðum félagsskap.

Línudans dreifist um Ísland

Grein úr dagblaðinu Degi á Akureyri frá 14. júlí 1996
Mynd með greininni úr dagblaðinu Degi á Akureyri frá 14. júlí 1996. Með Jóa á myndinni er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir heitin sem hélt uppi kröftugu línudansstarfi á Akueyri um árabil

Fyrstu árin sem ég kenndi línudans var áhuginn mikill og aðsóknin eftir því.

Ég kenndi að staðaldri í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík auk þess sem ég ferðaðist landshorna á milli til að halda námskeið og dansleiki.

Smám saman stækkaði íslenska línudanssamfélagið og fleiri kennarar, hópar og félög komu til sögunnar.

Auglýsingar fyrir Kántrýdans 1997

Í dag er línudanssamfélagið á Íslandi mjög öflugt. Námskeið eru haldin víða um land og íslenskir dansarar ferðast reglulega á línudanshátíðir í Evrópu og Norður-Ameríku.

Á sama tíma sækja erlendir línudansarar Ísland heim til að taka þátt í íslenskum viðburðum.

Það sýnir hversu langt samfélagið hefur náð frá fyrstu sporunum á varnarsvæðinu í Keflavík.

Iceland Line Dance Festival

Einn af nýjustu áföngunum í sögu línudans á Íslandi er Iceland Line Dance Festival.

Fyrsta hátíðin var haldin árið 2025 og til Íslands komu þekktir erlendir kennarar ásamt dönsurum frá fjölmörgum löndum.

Hátíðin gefur íslenskum línudönsurum tækifæri til að læra af fremstu kennurum heims án þess að þurfa að ferðast til útlanda og kynnir um leið íslenska línudanssamfélagið fyrir erlendum dönsurum. Hátíðin er haldin annað hvert ár, alltaf á haustin. Annað hvert ár þar á móti höldum við Óli Geir Mini útgáfu sérstaklega fyrir íslendinga.

Yfir 30 ár af línudansi

Í dag eru liðin yfir 30 ár frá því ég kenndi fyrsta línudansnámskeiðið mitt.

Á þeim tíma hef ég fengið að fylgjast með þúsundum Íslendinga stíga sín fyrstu spor.

Sumir hafa mætt til að hreyfa sig. Aðrir komu vegna tónlistarinnar og margir komu einfaldlega til að prófa eitthvað nýtt.

Sameiginlegt með þeim öllum er að þeir fundu gleði, félagsskap og áhugamál sem hefur fylgt mörgum þeirra árum og jafnvel áratugum saman.

Saga línudans á Íslandi heldur áfram

Saga línudans á Íslandi er enn í mótun.

Á hverju ári bætast nýir dansarar í hópinn, nýir dansar verða til og samfélagið heldur áfram að þróast.

Frá litlum hópi Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli fyrir rúmum 30 árum hefur línudans þróast í öflugt samfélag dansara um allt Ísland.

Og sagan heldur áfram með hverjum nýjum dansara sem stígur sín fyrstu spor á dansgólfinu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *