Hefurðu hugsað þér að prófa línudans en ert ekki alveg viss um hverju þú átt von á?
Fleiri hafa verið í þínum sporum.
Flestir sem mæta í sinn fyrsta línudanstíma hafa aldrei prófað línudans áður og margir hafa jafnvel aldrei stigið dansspor á ævinni. Það er því eðlilegt að vera með spurningar og jafnvel smá fiðring í maganum áður en lagt er af stað.
Góðu fréttirnar eru að þú þarft hvorki reynslu af dansi, dansfélaga né sérstaka hæfileika til að byrja.
Þarf ég að kunna að dansa?
Nei.
Reyndar eru flestir sem mæta á námskeið fyrir byrjendur algjörir nýliðar. Kennslan er byggð upp þannig að farið er rólega yfir einföldustu grunnsporin og síðan bætast ný spor smám saman við. Fyrstu dansarnir eru stuttir og einfaldir og Jóhann Örn danskennari nýtir sína áralöngu reynslu svo að allir í hópnum taki stöðug framfaraskref.
Enginn býst við því að þú kunnir neitt fyrirfram og reyndar segir Jói í fyrsta tímanum að hann geri ráð fyrir að þátttakendur þekki ekki vinstri fótinn frá þeim hægri.
Þarf ég að mæta með dansfélaga?
Nei
Þetta er snilldin við línudans.
Í línudansi dansa allir saman í hóp og því er engin þörf á dansfélaga. Þú getur mætt einn, með maka, vini eða einhverjum úr fjölskyldunni. Flestir koma einfaldlega einir og kynnast svo nýju fólki á námskeiðinu.
Í hvernig klæðnaði er best að vera?
Það mikilvægasta er að þér líði vel.
Mælt er með:
- Þægilegum fötum sem auðvelt er að hreyfa sig í.
- Léttum og þægilegum skóm sem eru hvorki of stamir né of sleipir á gólfinu.
- Ef þig langar að koma í country dressi og kúrekastígvélum er það auðvitað velkomið og eykur bara á stemmninguna í dansinum.
Hvað gerist í fyrsta tímanum?
Fyrsti tíminn er yfirleitt miklu einfaldari en fólk ímyndar sér.
Venjulega eru kenndir tveir einfaldir línudansar ætlaðir byrjendum í fyrsta tímanum. Kennarinn fer yfir fyrstu sporin skref fyrir skref og allir æfa sig saman. Þegar hópurinn hefur náð tökum á sporunum eru þau sett saman í einfaldan dans. Í lok tímans hafa báðir dansarnir verið æfðir tvisvar sinnum með tónlist.
Markmiðið er að læra, hreyfa sig og hafa gaman.
Þegar mætt er í annað sinn er flestir búnir að steingleyma báðum dönsunum úr fyrsta tímanum og þess vegna er einfaldlega byrjað upp á nýtt. Allt námskeiðið er svo verið að æfa þessa fyrstu tvo dansa og fleiri bætast við smátt og smátt.
Hvað ef ég ruglast?
Þá gerist það sama og hjá öllum öðrum. Þú brosir, finnur taktinn aftur og heldur áfram.
Allir sem dansa hafa einhvern tímann ruglast í sporunum. Það er hluti af því að læra eitthvað nýtt og enginn dæmir þig fyrir það.
Reyndar eru mistökin oft það sem vekur mesta kátínu í salnum.
Er ég of gamall til að byrja?
Alls ekki.
Margir þeirra sem byrja í línudansi eru yfir fimmtug og sumir byrja mun eldri.
Línudans er ekki keppnisíþrótt heldur skemmtileg hreyfing sem hver og einn getur stundað á sínum eigin forsendum. Það er því aldrei of seint að byrja.
Verð ég ekki alveg úti á túni?
Flestir hafa áhyggjur af þessu fyrir fyrsta tímann.
Sannleikurinn er sá að allir eru uppteknir við að læra sín eigin spor. Fólk er ekki að fylgjast með því hvort þú gerir mistök.
Vanir línudansarar er þekktir fyrir að vera vingjarnlegir og hjálpsamir og nýliðar fá alltaf góðar viðtökur.
Hvað ef mér líkar þetta ekki?
Þá hefur þú að minnsta kosti prófað.
En reynslan sýnir að margir sem mæta með efasemdir fara heim eftir fyrsta tímann með bros á vör og hlakka til næstu viku.
Það er eitthvað sérstakt við að læra ný spor, hlusta á góða tónlist og dansa í góðum félagsskap.
Fyrstu sporin eru einfaldari en þú heldur
Flestir sem hugsa um að byrja í línudansi hafa sömu áhyggjurnar.
Þarf ég að kunna að dansa?
Þarf ég dansfélaga?
Er ég of gamall?
Svarið við öllum þessum spurningum er einfaldara en margir halda.
Komdu bara eins og þú ert.
Þú þarft ekki að undirbúa þig sérstaklega. Þú þarft bara að mæta og gefa þessu tækifæri.
Línudans með Jóa
Jóhann Örn Ólafsson hefur kennt línudans á Íslandi í yfir 30 ár og hjálpað þúsundum Íslendinga að stíga sín fyrstu spor.
Hvort sem þú ert að leita að nýju áhugamáli, meiri hreyfingu eða skemmtilegum félagsskap gæti fyrsta línudanstíminn verið upphafið að einhverju sem þú átt eftir að njóta í mörg ár.
Kannski er núna kominn tími til að stíga fyrsta sporið.

