Hvað þarf ég að vita áður en ég mæti í fyrsta línudanstímann?

Línudans fjör hjá Jóa

Hvernig byrja ég í línudansi?

Margir sem hafa áhuga á línudansi spyrja sömu spurningarinnar:

„Get ég byrjað þó ég hafi aldrei dansað áður?“

Svarið er einfalt: Já.

Línudans hentar nánast öllum. Þú þarft hvorki að mæta með dansfélaga né hafa reynslu af dansi. Það eina sem þú þarft er vilji til að prófa eitthvað nýtt og hafa gaman. Finndu námskeið sem heitir Línudans fyrir byrjendur og skráðu þig á það.

Hvað er línudans?

Línudans er hópdans. Hópur fólks dansar sömu dansrútínu og nafnið vísar í að gott skipulag sé á hópnum, að allir séu saman í röðum. Línudans er ekki háður ákveðinnin tegund tónlistar en kántrý tónlist er án efa sú vinsælasta. En einnig er dansað með popplögum, rokki, suður-amerískri tónlist og diskó svo eitthvað sé nefnt.

Við hvert lag er dansaður einn ákveðinn dans sem samanstendur af ákveðinni röð sppra sem er endurtekin allt lagið. Þegar þú hefur lært grunnsporin verður auðveldara og auðveldara að læra nýja dansa.

Línudans fyrir byrjendur – þarf ég að kunna að dansa?

Flestir sem mæta á sitt fyrsta námskeið hafa aldrei stigið línudansspor áður. Kennslan er byggð upp þannig að fyrst er farið rólega yfir einföldustu grunnsporin og smátt og smátt ná allir þátttakendur tökum á byrjendadönsunum.

Nei engin kunnátta er nauðsynleg.

Markmiðið er að skemmta sér við að læra sporin og njóta svo hreyfingar í takt við skemmtilega tónlist.

Hvað þarf ég að taka með mér?

Það þarf mjög lítið til að byrja.

Við mælum með:

  • Þægilegum fötum sem auðvelt er að hreyfa sig í.
  • Léttum, hreinum og þurrum skóm sem eru hvorki of stamir né sleipir á dansgólfinu.
  • Vatnsbrúsa.
  • Góðu skapi.

Þú þarft ekki sérstaka dansskó til að byrja með.

Er ekki of seint að byrja á mínum aldri?

Alls ekki.

Margir byrja í línudansi á efri árum en ungt fólk er líka mjög áhugasamt að byrja og þar með eru hóparnir oft á skemmtilega breiðu aldursbili. Sumir byrja vegna þess að þeir vilja hreyfa sig meira, aðrir vegna þess að þeir vilja kynnast nýju fólki og enn aðrir skella sér með vinum eða einhverjum úr fjölskyldunni. Flestir mæta einfaldlega vegna þess að þeir elska tónlist.

Línudans er einstaklega skemmtileg leið til að sameina hreyfingu og gleði í góðum félagsskap.

Hversu langan tíma tekur að læra línudans?

Langflestir ná góðum tökum á 5-8 byrjendadönsum á sínu fyrsta námskeiði.

Eins og með allt annað verður maður öruggari eftir því sem maður æfir sig meira, en það er engin krafa um reynslu eða sérstaka hæfileika.

Mikilvægast er að mæta reglulega og njóta þess að reyna sig við eitthvað nýtt og skemmtilegt.

Hvernig er andrúmsloftið í tímum?

Eitt af því sem fólk nefnir oftast eftir fyrsta tímann er hversu vel því var tekið.

Línudanssamfélagið er þekkt fyrir að vera opið og vingjarnlegt. Nýliðar fá aðstoð þegar á þarf að halda og flestir muna vel hvernig það var að mæta í fyrsta skiptið.

Þess vegna myndast oft ný og góð vinátta á dansgólfinu.

Fyrstu sporin

Ef þú hefur verið að hugsa um að prófa línudans er besta ráðið einfaldlega að skrá sig á næsta námskeið; Línudans fyrir byrjendur, og mæta svo.

Þú þarft ekki að bíða eftir rétta tímanum, verða í betra formi eða finna dansfélaga.

Komdu bara eins og þú ert. Þú gætir verið aðeins nokkrum sporum frá nýju og skemmtilegu áhugamáli sem fylgir þér næstu árin.

Línudans með Jóa

Jóhann Örn Ólafsson hefur kennt dans allt frá árinu 1989 og hann hefur kennt línudans á Íslandi í yfir 30 ár og hjálpað þúsundum íslendinga að stíga sín fyrstu spor. 

Hvort sem þú ert algjör byrjandi eða hefur dansað áður ertu velkominn í hópinn.

Sjá nánari upplýsingar um námskeið og skráningu á www.linudans.is

Ef þú vilt líka fræðast um glæsilega, alþjóðlega línudanshátíð sem haldin er hérlendis annað hvert á er upplagt að smella á www.linedance.is og svo geturðu kíkt á myndbönd með byrjendadönsum hér

kr. 28.900
This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
kr. 25.900
This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
kr. 25.900
This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Price range: kr. 4.100 through kr. 46.900
This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *